Mat 5:3 Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki.
Mat 5:4 Sælir eru sorgbitnir, því að þeir munu huggaðir verða.
Mat 5:5 Sælir eru hógværir, því að þeir munu jörðina erfa.
Mat 5:6 Sælir eru þeir, sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu, því að þeir munu saddir verða.
Mat 5:7 Sælir eru miskunnsamir, því að þeim mun miskunnað verða.
Mat 5:8 Sælir eru hjartahreinir, því að þeir munu Guð sjá.
Mat 5:9 Sælir eru friðflytjendur, því að þeir munu Guðs börn kallaðir verða.
Mat 5:10 Sælir eru þeir, sem ofsóttir eru fyrir réttlætis sakir, því að þeirra er himnaríki.
Mat 5:11 Sælir eruð þér, þá er menn smána yður, ofsækja og ljúga á yður öllu illu mín vegna.
Comments